Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk
föstudagur, desember 08, 2006
Hér í Hollandi gildir sú regla að ef borgarar taka sig saman um ákveðið málefni og safna 40.000 undirskriftum til stuðnings þá verði málið tekið upp í neðra þinginu. Þetta kallast borgaraframtak.
Vakin var athygli mín á þessu um daginn þegar í gangi var undirskriftalisti til að stöðva þann kjötiðnað sem fer illa með skepnur og náttúru. Þar er átt við innflutning á kjöti sem er t.d. ræktað á landi sem var áður regnskógur amazon, kjöt af dýrum sem alin eru á verksmiðjubúum etc.
Skilst að þetta sé nú komið í gegn og verði þá tekið til umræðu í neðri deild hollenska þingsins.
skráð klukkan 10:56
mánudagur, desember 04, 2006
Hún fullyrti að ég væri klikkaður, hoppandi í stuttbuxurnar og út að skokka á mánudagsmorgni. Tók morgunsyrpuna mína þegar ég vil að dagurinn verði góður: Skokka, leikfimi á svefnherbergigólfinu. Kveða, hugleiða og biðja. Morgunmatur með Tragedy á fóninum.
Svo tékka póstinn. Hringi í vinnuna og snapa einhverjar vaktir. Hringdi í Palla á Íslandi til að fá hann til að redda vaktinni á bókasafninu í kvöld.
Að kveða á morgnana er að taka við því að kyrja. Búinn að kyrja að búddistasið í nokkur ár. Regluleg ástundun hefur viðhaldið ágætu jafnvægi í huganum. Hefur stundum flogið í hug afhverju ég væri að kyrja þetta á forn-japönsku þegar til er góð hefð fyrir að kveða rímur á forn-íslensku með gildri speki. Fann Hávamál á netinu og pikkaði út tólf parta. Sit svo og prófa mig áfram við að kveða á morgnana. Það er gaman. Mér finnst það líka virka til að viðhalda jafnvægi í huga mínum.
Í hugleiðslunni horfi ég í kertislogann nærri luktum augum. Læt birtuna streyma inn í mig þar til innra með mér hefur skapast ljósvera. Hleypi ljósverunni út úr líkamanum og smeygi mér út um gluggann, svíf hægt upp yfir bæinn og snýst hægt í hringi. Fylgist með sjóndeildarhringnum stækka þar til ég sé út yfir höf og lönd landamæralaus. Eyk hraðann á uppstreyminu, finn bleytu á vanga þegar ég kem inn í skýjahuluna. Staðnæmist skýjum ofar og nýt kyrrðarinnar veðrum ofar. Læt sjálfan mig leysast upp og dreifast í þunnri hulu yfir alla jörðina. Slikjan leysist upp og ég fell til jarðar í jöfnu lagi um allan hnöttinn. Samlagast hafinu og gróðrinum. Gef dóttur minni koss á vangann hinum megin við hafið. Hverf aftur inn í mig en þungi dagsins hefur dreifst yfir heiminn og ég get tekist á við daginn.
skráð klukkan 11:03
sunnudagur, desember 03, 2006
Í gær var bókamarkaður Anarkista í Utrecht. Ég var mættur snemma og sópaði saman í fullan bakpoka á skömmum tíma. Ská á móti markaðnum var pólitíska bókabúðin Rooije Rat að halda upp á 35 ára afmælið og margir titlar á útsölu. Kom heim með 32 bækur. Gaman fyrir bókaorma að komast á bókamarkað, en fyrir anarkista sem er bókaormur að komast á bókamarkað anarkista er alsæla :)
---
Zombie metalbandið "Send More Paramedics" spiluðu í gær. Við elduðum lasagna fyrir 40 manns. Allir saddur og sáttir. Bandið skemmtilegt og kröftugt. Málaðir eins og uppvakningar.
---
Nenni lítið að vinna þessa dagana. Er að skrifa bókina "Borgaraleg Óhlýðni og Beinar Aðgerðir" til að hressa upp á mótmælastemningu Íslendinga. Skrifa því minna á netið og meira af bók. Bókin mun endast lengur en nokkurt af því sem fer á netið í dag. Horfði á sjónvarpsþátt (!) á discovery um sólarstorma. Þeir verða á 22 ára fresti og möguleiki er alltaf á því að þeir verði svo sterkir að þeir eyðileggi rafmagnskerfi jarðar. Sá næsti verður árið 2011. Kemur sólin visterfinu til bjargar?
skráð klukkan 12:07