Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk
mánudagur, júlí 21, 2008
Miðvikudaginn 23. júlí fer fram ráðstefna á vegum Saving Iceland í Reykjavíkur Akademíunni. Á ráðstefnunni mun koma Samarendra Das, sem er indverskur rithöfundur, aktívisti og sérfræðingur um áliðnaðinn, ásamt Andra Snæ Magnasyni, rithöfundi.
Samarendra mun aðallega fjalla um áhrif álfarmleiðslu á þriðja heiminn, auk þess sem hann og Andri munu brjóta á bak aftur goðsögnina um svokalla ?græna álframleiðslu.
Síðasta sumar stóð Saving Iceland fyrir alþjóðlegu ráðstefnunni ?Hnattrænar afleiðingar stóriðju og stórstíflna? á Hótel Hlíð í Ölfussi, þar sem Andri Snær koma m.a. fram ásamt gestum frá fimm heimsálfum; m.a. frá Trindad og Tobago, Suður Afríku, Brasilíu og öðrum löndum. Samarendra Das var meðal fyrirhugaðra ráðstefnugesta en þurfti því miður að afboða komu sína á síðustu stundu. Saving Iceland er því ánægt að hafa loks tækifæri til að bjóða Samarendra til landsins.
Fyrirlesturinn mun fara fram í Reykjavíkur Akademíunni, Hringbraut 121 og hefst kl. 19:30
http://savingiceland.puscii.nl/?p=1965&language=is#more-1965
skráð klukkan 14:39
Álrisarnir og hergagnaiðnaðurinn - fræðslufundur í Friðarhúsi
Samarendra Das er inverskur rithöfundur, kvikmyndagerðamaður og aktívisti, sem berst gegn menningarlegum þjóðarmorðum í þriðja heiminum í tengslum við báxítgröft fyrir álframleiðslu.
Um þessar mundir er þessi kunni aktívisti hér á landi á vegum samtakanna Saving Iceland og stendur fyrir fræðslufundi í Friðarhúsi þriðjudagskvöldið 22. júlí kl. 20.
Efni fundarins er tengsl álrisanna við hergagnaiðnaðinn og stríðsrekstur.
Allir velkomnir!
Samtök hernaðarandstæðinga
skráð klukkan 14:33