Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk


fimmtudagur, október 02, 2008

Kvikmyndahátíð - skeyti

Miðvikudagur

The Investigator

Ungversk sakamálamynd. Aðalsöguhetjan líkskoðari sem félagslega á meiri leið með hinum látnu en hinum lifandi. Gerir þó sitt besta til að halda gangandi sambandi við stúlku sem fyrirgefur honum sérviskuna og finnst hann í raun þægilegur í umgengni þó hann tali ekki að óþörfu og hafi ekki húmor (stekkur aldrei bros!). Móðir hans er að deyja úr krabbameini og hann vantar peninga til að koma henni í aðgerð sem gæti framlengt líf hennar. Bom! Kemur skuggalegur náungi með tilboð um að drepa mann fyrir peninga. Hann tekur því. Drepur manninn. Heima bíður hans bréf frá þeim sama manni og hann drap og í bréfinu fagnar hann því að hafa fundið hálfbróður sinn! Sjitt ... hann drap bróður sinn!
Líkskoðarinn fer að rannsaka málið upp á eigin spýtur en er um leið grunaður um morðið.
Skemmtilegur karakter og skemmtilegt plott. Hin ágætasta sakamálamynd upp á ungversku. Frekar meinlaus og ódramatísk en þannig er nú tilveran yfirleitt.

Svo fórum við bara heim og nenntum ekki að sjá meira þennan daginn!
skráð klukkan 06:10

Kvikmyndahátíð - skeyti

Þriðjudagur

Eina lína á dag ætti að duga

Vildi kíkja á þessa litlu heimildamynd um færeyska "svarta pönk skáldið" Tórodd. Mætti í Iðnó. Spjallaði við skemmtilegt fólk um upplifanir af hátíðinni. Fékk nógan tíma til þess þar sem sýningin tafðist um hálftíma eða svo. Sá því ekki nema helminginn af myndinni. Tórodd að fara með ljóð og spjalla og rövla. Fyndinn kall en ábyggilega ekki alltaf skemmtilegur í sambúð. Hefði viljað sjá alla myndina en samt var mér nokk sama þó ég vissi ekki meira um skáldið Tórodd.

Birdsong

Spænsk kvikmynd sem leggur útfrá biblíusögunni um ferð vitringanna þriggja til að hitta jesúbarnið. Fyrsta hálftími Birdson sýnir þrjá ruglaða kalla ráfa um eyðimerkur og villilönd í nokkrum mjög löngum og kyrrum myndskotum. Síðan skyndilega "þarna er hún" - þá fattaði ég að þeir voru að leita að stjörnunni sem átti að vísa þeim veginn. Næsti hálftími var ýmis skot af hjárænulegum maríu og jósep hangandi fjárlaus við rollukofann sinn, eiga örlítil fáorð og marklaus samtöl en annars hanga eins og leiða hippa. Síðan ramba Gísli, Eiríkur og Helgi á svæðið og fagna jesúbarninu. Þá skyndilega kemur eitt stutt klassískt, fallegt tónverk en annars var eina hljóðið í myndinni röflið í vitringunum (hurðaskellir eftir þeim ca. 20 manns sem yfirgáfu salinn á fyrsta hálftímanum bauð upp á sándtrakk). Þeir hanga soldið með jesú, maríu og jósepp og síðan ráfa þeir aftur heim í kortérs löngum kyrrðarskotum.
Uppúr miðbiki kvikmyndarinnar sannfærðist ég um að hún væri í raun æfing í hugleiðslu. Og í raun nokkuð falleg sem slík. Væri ég mjög kristinn maður gæti ég eflaust fundið þá heimspekilegu innsýn sem mér var lofað og ég leitaði lengi í römmum Birdsong en fann ekki. Það var búið að vara okkur við að hún myndi reyna á og hún gerði það. Ég er aðallega sáttur við að hafa haldið hana út.
skráð klukkan 05:56

þriðjudagur, september 30, 2008

Kvikmyndahátíð - skýrsla

mánudagur

Fyrstu mistökin sem við gerum á þessari kvikmyndahátíð - þ.e.a.s. fyrstu myndirnar sem standa ekki undir væntingum:

Wild Bull

Indversk mynd um vandræði sem skapast í þorpi þar sem fullvaxið naut, sem hefur hingað til fengið að valsa um þorpið, verður skapstyggt og hrellir þorpsbúa. Fenginn er maður frá dýragarði næstu stórborgar til að koma og ná tökum á nautinu. Mikill farsi og hamagangur upp á indverskan máta. Uppruninn er einmitt eina ástæðan fyrir því að ég entist út myndina. Mig hreinlega langaði að hafa séð indverska kvikmynd en mun ekki sækja stíft að sjá fleiri.

In Search of a Legend

Lítill hópur pólskra ungmenna leggur upp í siglingu frá Grænlandi til Kanada gegnum norður íshafið. Fyrri norðurhjarafarar eru þeirra hetjur. Þau hitta Inúíta og annað fólk sem lifir enn á sel og hval og ferðalag þeirra hefur örugglega verið spennandi. En það skilar sér illa í myndina því, eins og gjarnan vill vera hjá ungu fólki, gera þau of mikið úr eigið mikilvægi og filma hvert annað sitt á hvað þannig að úr verður heimabíó um fríið þeirra. Pólski þulurinn malar stanslaust með myndinni, þýðingin er slæm og illa stafsett og þulurinn tala fyrir þau enskumælandi sem fá eitthvað að segja. Myndirnar fá aldrei að tala sjálfar.
Vorkenndi kvikmyndagerðarmanninum ekki nema smávegis þegar margir gesta yfirgáfu salinn um leið og myndin var búin í stað þess að taka þátt í umræðum með honum.
skráð klukkan 01:44

mánudagur, september 29, 2008

Kvikmyndahátíð - skýrsla

Sunnudagur

Afterschool

Það er auðvelt að finna unglinga hverra tilvera er marklaust og stefnulaust ferli. Hangið í skólanum til að friða foreldra en annars látið stýrast af hormónum og hungri. Ég er ekki alveg viss hvort að aðalsöguhetja Afterschool - Unglingsstrákur á heimavistarstkóla sem virðist upplifa heiminn sem raunverulegra fyrirbæri séðan í gegnum youtube - á við andlega vanheilsu að stríða eða er einungis afurð síns menningarhóps. Má segja að hann eigi við andlega vanheilsu að stríða vegna þess að hann er afurð síns menningarhóps? Ofbeldisklám er áhugamál en að öðru leyti er hann feiminn og firrtur og í enda kvikmyndarinnar er hann búinn að bætast í röð þeirra sem skólahjúkrunarfræðingurinn réttir pillur. Minnir á Kids efnislega og Elephant kvikmyndalega séð en nær hvorugri að styrk. Áhugaverð samt í vangaveltum sínum.

Home

Belgísk fjölskylda á hamingjusamt og léttgeggjað heimili við nýja hraðbraut sem hefur ekki verið opnuð í tíu ár. Hjón með tvær unglisstúlkur og fjörugan strákling. Skyndilega opnar hraðbrautin og þau sitja uppi með að heyra ekki í hvert öðru, krakkarnir komast ekki í skólann nema í stórhættu og allt er svart af sóti. Heimilisfriðurinn er úti. Þau klikkast á nokkrum dögum og múra sig inni til að verja sig fyrir hávaðanum.
Mjög góð mynd vegna skrautlegra karaktera og ádeilu á hina tröllheimsku bílamenningu heimsins.

Water

Heimildamynd um vatnsástand á þremur svæðum í heiminum. Eftir að hafa séð Flow - for love of water, hélt ég nóg að hafa séð eina "vatnsmynd" en þessi er allt annað en aktivismamyndin. "Water" lýsir vandamálum bænda í Bangladesh sem þurfa að leita sér að nýju landi eftir hvert rigningatímabil þar sem landi þeirra hefur skolað burt. Næst lýsir hún ástandinu við Aralvatn í Kazakhstan og hvernig áveituplön hinna miklu sovétleiðtoga fimmta áratugarins þurrkuðu upp vatnið og blómstrandi byggðina í kring. Þriðji hluti lýsir daglegu lífi í Kinsasa, fátækrahverfi Nairobi í Kenya. Í Kinsasa eru um fimmtán kranar fyrir um 2.7 milljón íbúa og nokkrir íbúar lýsa hvernig daglegt líf snýst um að komast að með vatnsbrúsa að kaupa vatns - þegar það er að hafa og þegar þau hafa efni á því. Hæg mynd og fróðleg.

Ax

Franskur sérfræðingur í pappírsgerð missir vinnuna. Sér hvernig hann er í samkeppni um þau störf sem eru í boði og lögmál markaðarins segir honum að hann verði að myrða þá aðra sem koma til greina fyrir þau störf sem hann sækir um. Svo hann hefst handa.

Skemmtileg og mjög vel leikin mynd sem deilir um leið á markaðsvæðingu manneskja á vinnumarkaði. Hvar skilur á milli vinnu og lífs?
skráð klukkan 01:08

sunnudagur, september 28, 2008

Kvikmyndahátíð 2008 - Skýrsla

Laugardagur

Without Mercy

Ungversk afar óhugguleg kvikmynd um bláfátækan sígauna sem hent er í fangelsi grunaður um morð, þáttur hans í morðinu er óljós framanaf en kemur í ljós að hann er saklaus en er haldið lengi í fangelsi. Myndin lýsir fangelsislífinu, yfirheyrslum, réttarhöldunum og eymd hans eftir að honum er sleppt lausum og enginn í þorpinu vill við hann tala eða leyfa honum að vinna.
Tæknilega séð mjög vel gerð mynd, eltir draumóra hans í leiðindum tilverunnar og harðneskju kerfisins sem hefur rangt fyrir sér. Fengi stjörnur ef það væri til í dæminu.

Barcelone (a map)

Fórum á þessa vegna þess að uppselt var á aðra mynd. Gegnum samræður fólks lýsir hún einmanaleik nokkurra ólíkra einstaklinga og lýsir upp um leyndarmál þeirra. Áhugaverð og forvitnileg vegna dularfullra karaktera en fórum snemma til að missa ekki af byrjun á næstu mynd.

O'Horten

Yndislega mannleg mynd með auga fyrir smáatriðunum í tilverunni sem gera lífið jafn skrítið og skemmtilegt og það er (eða getur verið hafi fólk auga fyrir þessum smáatriðum). Lestarstjóri fer á eftirlaun. Hann er einstæðingur og þar af leiðandi sérvitringur en veit ekki hvað hann á af sér að gera. Hann villist til að hitta fólk hér og þar, lendir í skondnum aðstæðum þar sem smáatriðin fyrrnefndu gera myndina jafn yndislega og hún er. T.d. sofnar hann í sundi og laumast út eftir lokun í hárauðum, háhæluðum kvenmannsskóm við lestarstjóraeinkennisbúninginn og alvarlegt andlit hans. Í annan stað kemur ísregn með snarhálku. Áhrif þess á umhverfið eru stórkostlega skondin.

Long Weekend

Miðnætursýningin. Áströlsk hryllingsmynd frá 1977. Ungt uppapar sem skiljanlega þolir ekki hvort annað (líf uppa snýst um neysluhyggju, sýndarmennsku og framapot bleh!) fer saman í útilegu. Sambandið milli þeirra er í molum en hann neitar að horfast í augu við það og er á flippinu með riffil skjótandi dýr, drepur andamömmu frá ungunum, ekur yfir kengúru á jeppanum, meðan hún hatar náttúruumhverfið, finnst það skelfilegt og vill komast heim í öryggið sitt (og komast burt frá manni sínum).
Náttúran snýst gegn þeim á allan hátt. Þau eru bitin af rottu, gogguð af fuglum, maurar setjast að nestinu, hann drepur sækú og kálfurinn hennar kveinar alla daga. Skelfing þeirra fer vaxandi og togstreitan milli þeirra um leið. Endar allt með skelfingu og enginn kemst lifandi heim. Góð mynd miðað við aldur. Á vel við auglýsingar Landsvirkjunar um fjárfestingar sínar í byggðum landsins á undan hverri mynd. Hljóðið skelfilega skerandi þannig að allt kvein skar í eyru.
skráð klukkan 14:32


This page is powered by Blogger. Isn't yours?