Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk


föstudagur, október 17, 2008

Ákall til þjóðarinnar - Davíð Oddsyni vikið frá störfum

Við mótmælum öll ? Hittumst á Austurvelli á laugardag kl. 15. Vertu þáttakandi, ekki þolandi. Hvetjið alla sem ykkur eru nærri til að mæta líka. Við fáum kannski bara þetta eina tækifæri.

Ákall til þjóðarinnar - Davíð Oddsyni vikið frá störfum ? Eina leiðin til að þjóðin haldi sjálfsvirðingu sinni nú er að hún sameinist í fjölmennum mótmælum með ein skýr skilaboð til stjórnmálamanna. Skýr skilaboð um að þjóðinni stendur ekki á sama, skilaboð um að hún sé þátttakandi en ekki þolandi í þeirri atburðarás sem nú fer í hönd. Skýr skilaboð sem valdhafar geta brugðist við strax, að Davíð Oddssyni verði vikið úr starfi Seðlabankastjóra.

Davíð Oddson ber mesta pólitíska ábyrgð á því að bankarnir voru einkavinavæddir á sínum tíma og hleypt í útrás með veikburða eftirlitskerfi. Síðan stillti hann sér upp til að fylgjast með þeim sem Seðlabankastjóri án faglegar þekkingar. Með röð mistaka í hagstjórn Seðlabankans undir forustu Davíðs og ótrúlegan einleik hans síðustu vikur er þjóðin gjaldþrota, rúin trausti og virðingu í alþjóðasamfélaginu.

Nýjir tímar - Vertu þáttakandi, ekki þolandi

http://www.nyjirtimar.com/

-
Hörður Torfason
Birgir Þórarinsson
Kolfinna Baldvinsdóttir
Dr.Gunni
Andri Sigurðsson
skráð klukkan 00:49


This page is powered by Blogger. Isn't yours?