Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk
föstudagur, desember 26, 2008
Kæri vinur
þó að þú finnir í sálufélaga ástina og þið dansið gegnum tilveruna á rósablöðum hönd í hönd
þú vaknir alsæll hvern morgun og finnir ást þína enn fallegri í dag en daginn áður eða daginn þaráður
þó að hvatir ykkar til hvers annars dofni aldrei lendar ykkar svari báli hjartans þið klífið saman fjallið í hvert sinn sem lostinn kallar
þó að sólin skíni hvern dag og aðeins rigni yfir blánóttina
þó smáfuglarnir syngi þitt lag fyrir utan gluggann og ljúffengustu afurðir vingjarnlega bakarans á horninu bráðni á tungu
þó vinir þínir séu ætíð til staðar ráðagóðir á raunastund vínið sæta tæmist aldrei af bikarnum
þó dansinn duni við ljúfa tóna og þjónustufulltrúar bankans brosi við þér og forsetinn sitji um að næla á þig heiðursmerkjum fyrir vel unnin störf í þágu þjóðar og almannaheilla
þó lögreglan hafi aldrei neitt við þig að sakast og tollarar og faríserar og innheimtumenn banki aldrei á þínar dyr misyndismenn og klækjarefir hverskyns játi sig fyrirfram sigraða í viðskiptum og ofbeldismenn gangi hjá og kreppi hnefana með hendurnar í buxnavösum
þó lífi þínu verði aldrei lýst öðruvísi en sem beinni öruggri braut hús þitt fallegt veggir þess málaðir börnin hraust og virða foreldra sína og verða þeim þakklát fyrir allt sem þau hafa lært
þó sjúkdómar forðist þig og plágur og pestir taki á sig sveig fram hjá þínum dyrum þú verðir aldrei þunglyndur bölsýnn eða trekktur á taugum
þó þú missir ekki hárið fáir ekki krabbamein hægðatregðu kviðslit eða inngrónar táneglur
þó að guð þinn miskunni sig yfir þig og blessi þig og bænheyri og varðveiti þig frá allri synd hvern dag
þó að hamingjan yfirgefi aldrei hjarta þitt og hvert spor þitt sé gæfuríkt og óskir þínar rætist án þess að þú ofmetnist fyllist hroka eða setjir sjálfan þig á stall
þó svo að öll þín ganga frá vöggu til grafar allt til dánardags í hárri elli sáttur og saddur lífdaga verði kraftmikið og gefandi uppbyggilegt og jákvætt ferli og svo gaman og svo yndislegt að þú færð verk í hjartað illt í magann og tár í augun
þá máttu
aldrei
aldrei
aldrei
gleyma því
að lífið
hefur
engan tilgang
skráð klukkan 00:48